Landið aðliggjandi Faxa selt

Fossinn Faxi er ein af náttúruperlum landsins og stolt Tungnamanna

Fjölskyldan á Geysi hefur keypt aðliggjandi land af Brynjari Sigurgeir Sigurðssyni bónda á Heiði. Landið er 10 ha. að stærð og hefur að geyma Tungnaréttir, vinsælt tjaldstæði, þjónustuhúsi með veitingaaðstöðu og aðgengi að fossinum Faxa.

,,Nú færist bara aldurinn yfir og þar af leiðandi taldi ég skynsamlegt af mér að fara aðeins að breyta til og létta á mér” sagði Brynjar kampakátur með söluna. ,, Svo var ég líka afskaplega ánægður með kaupendurna sem ég treysti öðrum fremur til góðra verka hér” sagði Brynjar og blm. gat tekið undir það af talsverðri þekkingu að kaupendurnir eru þekkt af því að vera velviljuð sinni sveit. Mun það sannarlega koma sér vel þar sem Tungnaréttir eru innan svæðisins og mun staðsetning þeirra áfram kalla eftir góðu samstarfi til langrar framtíðar.

Brynjar Sigurgeir Sigurðsson bóndi á Heiði

Tungnaréttir eru staðsettar við náttúruperlu og án efa eitt fallegasta réttarstæði landsins. Mynd tekin úr almenningnum fyrir allmörgum árum.

Það var árið 1955 sem Tungnaréttir voru færðar til og byggðar á þessum fallega stað við fossinn. Þá var það afi Brynjars, Þorsteinn Sigurðsson bændahöfðingi og bóndi á Vatnsleysu sem með miklum rausnarskap lagði til landið, er síðar gekk áfram til sonar hans Sigurðar og fylgdi yfir að nýbýlinu Heiði er stofnað var útúr Vatnsleysujörðinni. Sonurinn Brynjar tók svo við keflinu af honum.

Réttirnar endurbyggðar árið 2012 og 13

,,Það var svo í kjölfar þess sem gengið var frá samningi við sveitarfélagið að þinglýst kvöð um afnot og staðsetningu réttarsvæðisins til ársins 2065. Sú kvöð fylgir auðvitað landinu áfram” segir Brynjar “. Um leið og hann færist algerlega undan því að ræða söluverðið en vill geta þess að málsaðilar beggja vegna borðs hafi verið afar sáttir og ánægðir með niðurstöðuna”.

Síðustu árin hefur verið seldur aðgangur að bílastæði og tjaldstæði við fossinn.

Ekki náðist í fulltrúa kaupenda við gerð fréttar.

Follow Us

Advertisement